Íþrótta- og útivistardagur grunnskólanna í Húnavatnssýslum

Félagar úr Björgunarfélaginu Blöndu buðu upp á stutta sjósiglingu við Blönduóshöfn. Mynd: Huni.is, ljósmyndari Róbert Daníel Jónsson.
Félagar úr Björgunarfélaginu Blöndu buðu upp á stutta sjósiglingu við Blönduóshöfn. Mynd: Huni.is, ljósmyndari Róbert Daníel Jónsson.

Grunnskólarnir í Húnavatnssýslum héldu sinn árlega íþrótta- og útivistardag á Blönduósi í gær. Þangað mættu um 150 nemendur 7.-10. bekkja Blönduskóla, Höfðaskóla, Húnavallaskóla og Grunnskóla Húnaþings vestra og vörðu deginum saman við alls kyns hreyfingu og útivist. 

Húni.is segir frá því að dagskráin hafi verið fjölbreytt að vanda. Góðir gestir, þau Thelma Dögg Grétarsdóttir og Sigþór Helgason, komu frá Blaksambandi Íslands og buðu upp á fjölbreyttar blakæfingar. Félagar úr Björgunarfélaginu Blöndu buðu upp á stutta sjósiglingu við Blönduóshöfn, áhugasamir fengu að prófa júdó hjá Júdófélaginu Pardusi, farið var í gönguferðir með leiðsögn út í Hrútey, heimsókn í Textílsetrið þar sem gestirnir fengu að reyna sig við refilinn og að þæfa ull. Þeir sem vildu, kepptu í fótbolta, skák og borðtennis. Að auki var hægt að fara í Metabolic, prófa klifurvegginn, kasta pílum, fara í þriggja stiga keppni í körfubolta, halda fótbolta á lofti, reyna sig á Assault-bike og auðvitað fara í sund.

Dagurinn tókst vel og skemmtu krakkarnir sér hið besta allan daginn við þessi fjölbreyttu verkefni og enduðu góðan dag á pizzuveislu og dansiballi í Félagsheimilinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir