Íþróttalýðháskólar í Danmörku – styrkir til náms

Ungmennafélags Íslands styrkir ungt fólk til náms í Lýðháskólum í Danmörku, líkt og undanfarin ár, en UMFÍ hefur gert samning við tíu skóla víðs vegar í Danmörku og er styrkurinn háður því að sótt sé um viðkomandi skóla.

Samkvæmt heimasíðu UMSS er umsóknarfrestur fyrir styrk á haustsmisseri til 15. ágúst og senda skal umsóknina á netfangið sabina@umfi.is. Fyrir nám á vorönn skal sækja um fyrir 1. september.

Nánari upplýsingar um skólana er að finna á heimasíðu UMFÍ Frekari upplýsingar fást á Þjónustumiðstöð UMFÍ Sigtúni 42 í síma 568-2929.

Fleiri fréttir