Jethro Tull flytur Thick as a Brick í Hörpu 21. júní

Breska sveitin Jethro Tull er væntanleg til Íslands á sumri komanda og flytur meistarastykki sitt, Thick as a Brick, í heild sinni á Eldborgarsal Hörpu fimmtudagskvöldið 21. júní eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Performer ehf. Miðasala hefst í Hörpu og á midi.is 2. febrúar nk.

Jethro Tull/Ian Anderson, leiðtogi sveitarinnar, hafa nokkrum sinnum áður komið fram á tónleikum á Íslandi, síðast árið 2009 og þá seldust aðgöngumiðarnir upp samdægurs!

Tónleikar Jethro Tull 2012 verða sannkallaður hvalreki fyrir fjölmarga aðdáendur sveitarinnar hérlendis því sveitin hefur ekki flutt þetta magnaða tónverk sitt í heild á sviði í fjóra áratugi eða frá því hún gaf það út á plötu árið 1972. Jethro Tull fagnar útgáfu Thick as a Brick með samnefndri tónleikaferð á árinu 2012. Fyrstu tónleikarnir verða í Bretlandi í apríl og síðan liggur leiðin til fleiri Evrópuríkja og Bandaríkjanna með viðkomu í Reykjavík.

Flutningur Thick as a Brick tekur hátt í 45 mínútur og verður ekki einungis tónlistarupplifun heldur sjónræn einnig. Áhrifamikil myndasýning er hluti sviðsetningar tónverksins og með hljómsveitinni kemur breskur leikari til að taka þátt í flutningnum. Jethro Tull mun einnig flytja mörg önnur af þekktustum lögum sínum og ekki er útilokað að eitthvað heyrist af væntanlegum diski sveitarinnar, sem gefinn verður út haustið 2012.

Thick as a Brick er heildstætt tónverk eftir Ian Anderson, foringja Jethro Tull, og kom út á fimmtu hljóðversplötu sveitarinnar. Sumir tónlistargagnrýnendur töldu Aqualung frá árinu 1971 vera slíkt verk (concept album). Ian Anderson var því ósammála og ákvað að semja raunverulegt „konsept-verk“ - sem varð Thick as a Brick.  Hljómsveitin fylgdi útgáfunni eftir með tónleikaferð um heiminn árið 1972.

Thick as a Brick magnaði mjög vinsældir Jethro Tull og platan náði til dæmis fyrsta sæti bandaríska Billboard-listans. Fyrri plötur Tull höfðu ekki náð slíkum árangri þar vestra. Eftir að tónleikaferðinni lauk 1972 hefur Jethro Tull ekki flutt Thick as a Brick á sviði þar til að það gerist 2012, fjörtíu árum síðar.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir