Jóhann Skúla knapi ársins 2013
Uppskeruhátíð hestamanna á Íslandi fór fram í gærkvöldi á Broadway og voru árleg knapaverðlaun veitt. Skagfirðingurinn og margfaldur heimsmeistari í tölti, Jóhann R.Skúlason hlaut titilinn Knapi ársins. Á síðasta heimsmeistaramóti sem fram fór í Berlín slógu þeir Jóhann og Hnokki frá Fellskoti í gegn í töltinu og sigruðu glæsilega.
Fleiri knapar af Norðurlandi vestra fengu viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur: Ísólfur Líndal Þórisson frá Lækjamóti var valinn gæðingaknapi ársins og Bergþór Eggertsson frá Bjargshóli í Miðfirði hlaut titilinn skeiðknapi ársins.
Aðrir knapar sem fengu viður kenningar voru:
- Íþróttaknapi ársins: Jakob Svavar Sigurðsson
- Kynbótaknapi ársins : Árni Björn Pálsson
- Efnilegasti knapinn : Konráð Valur Sveinsson
Og fyrir ræktun keppnishesta hlaut Efri – Rauðalækur viðurkenningu.
Á vef Hestafrétta er hægt að nálgast fjölda mynda frá kvöldinu.