Jóhanna Erla Pálmadóttir sæmd fálkaorðunni
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
18.06.2019
kl. 09.05
Jóhanna Erla Pálmadóttir á Akri í Húnavatnshreppi var í gær, á þjóðhátíðardegi Íslendinga, sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu sem forseti Íslands afhenti við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Riddarakrossinn hlýtur Jóhanna fyrir störf í þágu safna og menningar í heimabyggð en hún verkefnastjóri og fyrrverandi framkvæmdastjóri Textílseturs Íslands, Blönduósi.
Alls voru sextán Íslendingar sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu að þessu sinni. Þeir eru:
- Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir ljósmóðir og hjúkrunarstjóri, Kirkjubæjarklaustri, riddarakross fyrir framlag til heilbrigðis- og björgunarstarfa í heimabyggð.
- Bára Grímsdóttir tónskáld og formaður Kvæðamannafélagsins Iðunnar, Reykjavík, riddarakross fyrir varðveislu og endurnýjun á íslenskum tónlistararfi.
- Bogi Ágústsson fréttamaður og formaður Norræna félagsins, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi fjölmiðlunar og norrænnar samvinnu.
- Guðrún Ögmundsdóttir félagsráðgjafi og fyrrverandi þingkona, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag í þágu mannúðar og jafnréttisbaráttu hinsegin fólks.
- Halldóra Geirharðsdóttir leikkona, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar.
- Helgi Árnason skólastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi skóla og skáklistar ungmenna.
- Hildur Kristjánsdóttir ljósmóðir og dósent við Háskóla Íslands, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu ljósmæðra og skjólstæðinga þeirra.
- Hjálmar Waag Árnason fyrrverandi skólameistari, þingmaður og framkvæmdastjóri Keilis, Reykjanesbæ, riddarakross fyrir forystu á vettvangi skólastarfs og menntunar.
- Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenskar tónlistar.
- Dr. Janus Guðlaugsson íþrótta- og heilsufræðingur, Álftanesi, riddarakross fyrir framlag til eflingar heilbrigðis og íþrótta eldri borgara.
- Jóhanna Erla Pálmadóttir verkefnastjóri og fyrrverandi framkvæmdastjóri Textílseturs Íslands, Blönduósi, riddarakross fyrir störf í þágu safna og menningar í heimabyggð.
- Jón Ólafsson fyrrverandi prófessor, Kópavogi, riddarakross fyrir rannsóknir, fræðistörf og kennslu á sviði haffræði.
- Skúli Eggert Þórðarson ríkisendurskoðandi, Reykjavík, riddarakross fyrir nýjungar í stjórnun og mannauðsmálum hjá hinu opinbera.
- Tatjana Latinovic deildarstjóri, formaður Kvenréttindafélags Íslands og formaður Innflytjendaráðs, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til atvinnulífs, jafnréttis og málefna innflytjenda.
- Þórður Guðlaugsson vélstjóri, Kópavogi, riddarakross fyrir lífsstarf á vettvangi sjávarútvegs og björgunarafrek í mannskaðaveðri.
- Þórunn Jarla Valdimarsdóttir sagnfræðingur og rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til sagnfræða og íslenskra bókmennta.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.