Jólablað Feykis kemur út í dag

Brakandi fínt Jólablað Feykis kemur út í dag en þar kennir ýmissa grasa. Blaðinu verður dreift frítt inn á öll heimili á Norðurlandi vestra. Meðal efnis í blaðinu eru viðtöl við Rósu Guðmundsdóttur í Goðdölum, Pawel Mickiewicz á Blönduósi, Pálu Kristínu Bergsveinsdóttur brottfluttan Króksara, Caroline Kerstin Mende eða Karólínu í Hvammshlíð, Sólveigu Birnu Halldórsdóttur í Afríku, en aðalviðtalið er að þessu sinni við þau Sigríði Gunnarsdóttur sóknarprest á Sauðárkróki og Þórarinn Eymundsson margfrægan hestamann.

Auk þessa veltir sóknarprestur Blönduósskirkju því fyrir sér hvernig Guð lítur út í hugvekju blaðsins, Pálína Fanney Skúladóttir svarar Jóla Tón-lystinni, Einar K. Guðfinnsson segir frá seiðmagni Austurdals, harmleikurinn í Sauðadal frá árinu 1934 er rifjaður upp, Páll Snævar Brynjarsson rifjar upp Þorláksmessustemningu skömmu fyrir 1980 á Aðalgötunni á Króknum, Hjalti Pálsson segir frá merkum fornminjum í Fljótum sem fundust í sumar, litið er inn hjá eldri borgurum í Húnaþingi vestra og kíkt á jólaföndrið og svo er jólamyndagátan á sínum stað.

Ekki er þó allt upp talið því margar uppskriftir eru að finna í blaðinu en aðaluppskriftir koma frá konunum í Slysavarnafélaginu Hörpu á Hofsósi. Þá eru nokkrir stuttir þættir eins og Jólin koma, Jólin mín, kynning á bókaútgáfu nokkurra rithöfunda, gullkorn barnanna og skagfirskar skemmtisögur eru á víð og dreif. Í lokin er svo hægt að benda á gómsætt jólanammi en konfektuppskrift frá systrunum Ragnheiði, Hrafnhildi og Berglindi Ósk Skaptadætrum er einnig að finna í blaðinu og tilvalið að reyna sig í konfektgerðinni.

Auk þess að blaðinu verður dreift í dag mun það verða aðgengilegt hér á Feyki.is.

Fleiri fréttir