Jólahús ársins á Blönduósi
Lesendur Húnahornsins völdu Heiðarbraut 1 sem Jólahús ársins 2013 á Blönduósi. Húsið er ríkulega og fallega skreytt jólaljósum og hefur það vakið athygli bæjarbúa. Fjölmörg hús fengu tilnefningar en eitt skaraði fram úr og var það Heiðarbraut 1.
Í innsendum umsögnum segir m.a.: „Smekklegt á einfaldleika sínum, bjart og fallegt, sem skilar fallegri útkomu.“ „Flott og vel uppsett, stílhreint og smekklegt“.
Eigendur Heiðarbrautar 1 eru Valgerður Hilmarsdóttir og Þorgils Hallgrímsson og mega þau eiga von á fulltrúa Húnahornsins næstu daga með viðurkenningu fyrir valið.
