Jólaljósin tendruð að lokinni aðventuhátíð

Aðventuhátíð fer fram í Blönduóskirkju annan sunnudag í aðventu, sunnudaginn 4. desember nk. kl. 16. Að henni lokinni verða jólaljósin tendruð á trénu utan við kirkjuna um kl. 17.

Aðventuhátíðin er fyrir allar sóknir prestakallsins og verður fjölbreytt og glæsileg dagskrá í tali og tónum. Þar munu kirkjukórar prestakallsins sameinast í söng og Sigríður Bjarney Aadnegard skólastjóri flytja hugvekju. Lúðrasveit Tónlistarskóla Austur-Húnavatnssýslu mun leika og börn úr leikskólanum Vallabóli og Húnavallaskóla munu syngja. Fermingabörn bera inn aðventuljósið og svo verður samsöngur.

Eftir athöfnina verður sem fyrr segir ljósin tendruð á jólatrénu utan við kirkjuna. Jólatréð er gjöf frá Moss, vinabæ Blönduósbæjar í Noregi. Þar verða sungin jólalög og von er á heimsókn frá jólasveinum sem taka örugglega lagið með viðstöddum.

Fleiri fréttir