Jólamarkaður í Húnaveri
Kvenfélag Bólstaðarhlíðarhrepps stendur fyrir jólamarkaði í Húnaveri þann 7.des. nk. en það mun vera í fjórða sinn sem það er gert enda mælst vel fyrir og verið vel sótt. Markaðurinn hefst kl 13.00 og stendur til kl.17.00 og verður fjölbreyttur varningur á boðstólum frá fyrirtækjum og einstaklingum s.s. fatnaður, ýmiskonar handverk, bakkelsi og ýmislegt fleira.
Kvenfélagið verður svo með kaffisölu á staðnum og mun allur ágóði renna til Jólaaðstoðar Fjölskylduhjálpar Austur-Húnavatnssýslu. Kaffi og með því kostar kr. 1.000.- á mann, frítt fyrir 6 ára og yngri en gott er að hafa í huga að sumir söluaðilar geta ekki tekið við greiðslukortum. Viðburðurinn er á Fésbókinni undir nafninu Markaður í Húnaveri 2013.