Jólatónleikar á Blönduósi og Skagaströnd
Kórfólk úr Austur–Húnavatnssýslu hefur í haust undirbúið veglega jólatónleika sem verða haldnir dagana 27. og 28. des nk. „Einleikarar- og söngvarar og sérstakir gestir verða þau Þórhallur Barðason og Helga Dögg Jónsdóttir sem glatt hafa eyru og augu okkar svo oft áður,“ segir á Húna.is.
Dagskráin verður flutt í Blönduóskirkju þann 27. desember kl. 20:30 og þann 28. desember á sama tíma í Hólaneskirkju Skagaströnd.
Stjórnendur eru þau Svavar Sigurðsson og Sigrún Grímsdóttir. Aðgangseyrir verður kr. 2000.