Jólatónleikar Lóuþræla á Skagaströnd

Karlakórinn Lóuþrælar heldur jólatónleika í Hólaneskirkju á Skagaströnd í kvöld, fimmtudaginn 6. desember, kl. 20:30. Stjórnandi kórsins er Guðmundur St. Sigurðsson og undirleikari Elinborg Sigurgeirsdóttir. Einsöngvari er Guðmundur Þorbergsson en um kynningu sér Magnús Magnússon sem einnig flytur hugvekju. Á söngskránni eru jóla- og aðventulög, íslensk og erlend.

Tónleikarnir eru í boði Landsbankans á Hvammstanga og styrktir af Menningarráði Norðurlands vestra.

Fleiri fréttir