Jólin kvödd á Barnabóli

Þrettándagleði á leikskólanum Barnabóli á Skagaströnd. Mynd: Vefsíða leikskólans.
Þrettándagleði á leikskólanum Barnabóli á Skagaströnd. Mynd: Vefsíða leikskólans.

Á föstudaginn kvöddu börn og starfsfólk á Barnabóli jólin og héldu þrettándann hátíðlegan. Foreldrar komu og borðuðu piparkökur og drukku heitt súkkulaði með börnum sínum í kring um varðeld og fengu að heyra fallegan söng.

Börnunum bauðst að mæta í sparifötum í leikskólann og gerðu það mörg, en sumum þykja skólafötin betri. Hátíðarhádegisverður var á borðum og dansað þrettándadiskó eftir matinn. Á heimasíðu leikskólans segir að dagurinn hafi verið hátíðlegur og skemmtilegur.

Fleiri fréttir