Kaffi Bjarmanes á Skagaströnd er til leigu

Bjarmanes á Skagaströnd. Mynd:mbl.is
Bjarmanes á Skagaströnd. Mynd:mbl.is
Fram kemur á vef Húnahornsins, huni.is að Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir eftir umsóknum um að leigja og reka kaffi-og menningarhúsið Bjarmanes á Skagaströnd. Bjarmanes er gamalt og fallegt steinhús, byggt 1913 en var allt endurbyggt 2004, og í því er aðstaða til kaffihúsreksturs. Húsið stendur miðsvæðis á Skagaströnd og þaðan er afbragðs útsýni yfir höfnina og Húnaflóann.

Umsóknum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar fyrir 10. apríl 2017 þar sem m.a. komi fram hugmyndir umsækjanda um reksturinn.

Umsóknum má einnig skila rafrænt á netfangið magnus@skagastrond.is.

 

 

Fleiri fréttir