Kaffi og bakkelsi á bókasöfnum í dag
Bókasafnsdagurinn er haldinn hátíðlegur um allt land í dag og er það í þriðja sinn sem það er gert. Að þessu sinni er dagurinn tengdur degi læsis sem er haldinn 8. september ár hvert. Yfirskrift dagsins er ,,Lestur er bestur – spjaldanna á milli. Það er Upplýsing, félag bókasafns- og upplýsingafræða, í samstarfi við bókasöfn á Íslandi sem heldur Bókasafnsdaginn.
Í tilefni dagsins býður Héraðsbókasafn A-Hún. á Blönduósi upp á kaffi og bakkelsi en einnig verður happadrætti. Allir sem koma á bókasafnið þann 9. september milli klukkan 14 - 18 og skila atkvæði um uppáhaldsbókina sína geta dottið í lukkupottinn og unnið glæsileg bókaverðlaun. Uppáhaldsbækur bókasafnsgesta verða síðan kynntar.
Á Héraðsbókasafni Skagfirðinga á Sauðarkróki verður boðið upp á kaffi og kleinur, sektarlausan dag og einnig verður hægt að fá eldri bækur gefins.
Tilgangur dagsins er að vekja athygli á mikilvægi bókasafna fyrir þjóðfélagið en þau gegna mikilvægu hlutverki sem miðstöð fræðslu og þekkingar.