Kaffihlaðborð í Hamarsbúð
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
27.07.2015
kl. 10.06
Um Verslunarmannahelgina ætla Húsfreyjurnar í Hamarsbúð á Vatnsnesi að bjóða upp á kaffihlaðborð þar sem boðið verður upp á rjómapönnukökur, smurbrauð og annað fjölbreytt meðlæti að hætti Húsfreyjanna.
Hlaðborðið verður á laugardaginn 1. ágúst og sunnudaginn 2. ágúst n.k og opið verður á milli kl. 14 og 18 báða dagana.
Verð kr. 2000 fyrir 13 ára og eldri, en kr. 1000 fyrir 6 - 12 ára.
Regína Ólína Berndsen Þórarinsdóttir sýnir ljósmyndir.
Allir hjartanlega velkomnir.
/fréttatilkynning