Kaffihlaðborð í Skagabúð 17. júní.
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
16.06.2015
kl. 15.46
Kvenfélagið Hekla verður með sitt sívinsæla kaffihlaðborð miðvikudaginn 17. júní í Skagabúð frá klukkan 14 til 17. Hestamenn úr Snarfara á Skagaströnd verða með hesta og teyma undir börnum.
„Tilvalið að skella sér fyrir Skagann og kíkja í kaffi,“ segir í tilkynningu. Hlaðborðið kostar 1700 kr. fyrir 13 ára og eldri, 1200 fyrir 7-12 ára og er frítt fyrir 6 ára og yngri.