Kaldavatnslaust á Blönduósi í dag
Vatnsveita Blönduóss hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að loka þarf fyrir rennsli á köldu vatni vegna tenginga í vatnsveitu í dag, föstudaginn 16. desember milli kl. 15 – 16.
Lokunin verður í eftirfarandi götum:
- Mýrarbraut
- Húnabraut
- Sunnubraut
- Smárabraut
- Skúlabraut
Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Eysteini í síma 8964775.