Kalksalt á Blönduós

Eyvindur Atli Ásvaldsson, fyrrum eigandi, og Rúnar Örn Guðmundsson á 
Síðu handsala kaupin. Mynd af FB-síðu Kalksalts.
Eyvindur Atli Ásvaldsson, fyrrum eigandi, og Rúnar Örn Guðmundsson á Síðu handsala kaupin. Mynd af FB-síðu Kalksalts.

Fyrirtækið Kalksalt er á leið á Blönduós eftir að það skipti um eigendur en það hefur verið rekið sem lítið fjölskyldufyrirtæki á Flateyri. Fyrirtækið er hið eina sinnar tegundar á Íslandi og framleiðir saltbætiefni fyrir kindur, kýr og hesta.

Það var fyrir mánuði síðan að fram kom á Facebook-síðu fyrirtækisins að það væri til sölu vegna breyttra aðstæðna eigenda. Í dag var svo tilkynnt að það væri á leið til nýrra eigenda í Húnabyggð. „Við fundum fólkið okkar, hér afhendir Eyvindur honum Rúnari á Síðu fyrirtækið en Kalksalt ehf. er á leiðinni á Blönduós, til hamingju Rannveig og Rúnar með nýja fyrirtækið ykkar og gangi ykkur allt í haginn,“ segir í tilkynningu Kalksalts.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir