Kanna áhuga á sameiningu samhliða sveitarstjórnarkosningum
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps hefur ákveðið að samhliða sveitarstjórnarkosningum 31. maí 2014 fari fram skoðanakönnun meðal íbúa Húnavatnshrepps, þar sem spurt verði um afstöðu þeirra til sameiningar Húnavatnshrepps við önnur sveitarfélög.
Á vef Húnavatnshrepps kemur fram að skipaður hefur verið starfshópur sem leggja mun fram tillögu á næsta fundi sveitarstjórnar um framsetningu spurninga í skoðanakönnuninni.
„Í samræmi við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011 verða þær spurningar sem bornar verða fram í skoðanakönnuninni kynntar opinberlega með a.m.k. fjögurra vikna fyrirvara,“ segir á vefnum.
Hér má skoða skýrsla KPMG frá í desember 2013, um hagræðingu af sameiningu sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu.