Keðjukast bjargaði flutningabílum

Birgir Ingþórsson bóndi og flutningabílstjóri á Uppsölum í Húnavatnshreppi kom með snarræði í veg fyrir að tveir flutningabílar rynnu út af veginum um Laxárdalsheiði sl. fimmtudag. Á eftir honum var annar flutningabíll og sá var með vagn í eftirdragi og voru þeir báðir búnir að stoppa til að keðja bílana, enda flughált.

„Ég hljóp aftur með bílnum, henti annarri keðjunni við vinstri afturhjólið á vagninum og kastaði hinni keðjunni undir hann og hún lenti á hægra afturhjólinu, “ segir Birgir í samtali við Morgunblaðið.

„Ég var að koma niður Laxárdalsheiðina af Vestfjörðum og var kominn að vegamótunum þar sem Laxárdalsheiðin og vegurinn sem liggur norður Strandir mætast. Það er mjög hált þarna og ég stoppaði aðeins fyrir ofan og ætlaði að setja keðjur á bílinn. Þegar ég var búinn að taka keðjurnar úr kassanum rann bíllinn aðeins út í kantinn,“ segir Birgir. Hinn bílinn hafði verið stöðvaður nokkru fyrir aftan bíl Birgis í sama tilgangi, að setja keðjur undir hann og hafði bílstjórinn farið út úr bílnum.

„Svo verður mér litið aftur fyrir bílinn minn og þá sé ég að hann rennur stjórnlaust í átt að bílnum hjá mér. Ég hljóp aftur með bílnum, henti annarri keðjunni við vinstri afturhjólið á vagninum og kastaði hinni keðjunni undir hann og hún lenti á hægra afturhjólinu. Það varð til þess að vagninn stoppaði á keðjunum af mínum bíl. Þá var flutningabíllinn um einn og hálfan metra frá bílnum mínum. Ef hann hefði lent á honum, þá hefði minn væntanlega farið áfram og líklega farið út af.“ Spurður um viðbrögð bílstjóra hins bílsins segir Birgir hann hafa verið afar feginn og þakklátan.

Birgir keyrir gripaflutningabíl fyrir sláturhúsið á Blönduósi og hefur starfað sem bílstjóri í um 15 ár. Hann segist ekki muna eftir jafn mikilli hálku í jafn langan tíma í einu og nú. „Bíllinn hjá mér er á nýjum dekkjum og allt neglt en það er ekkert sem dugar í svona færð. Ég er að setja keðjurnar undir 6-7 sinnum á dag. Frostþokan er slæm, hún leggst niðri við jörðu og af henni kemur úði þannig að það kemur glæra.“

Birgir segist ekki hafa æft keðjukast hingað til. „En menn ætti kannski að fara að æfa það, þar sem þetta gekk svona vel. En þetta var röð atvika, ég hafði lítinn tíma til að hugsa, heldur gerði það sem ég hélt að myndi gagnast. Ætli þetta hafi ekki verið ósjálfráð viðbrögð.“

Fleiri fréttir