Kennara vantar í FabLab
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra auglýsir nú eftir kennara til að kenna 12t/v í stafrænni smiðju (FABLAB) við skólann en hann er í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Sveitarfélagið Skagafjörð um verkefnið sem var sett á fót skömmu fyrir síðustu áramót.
Eflaust er þarna um skemmtilegt og fjölbreytt starf að ræða en FabLabið hefur notið sívaxandi vinsælda meðal fólks sem hefur fengið að reyna sig í hönnun og smíði allskonar hluta í þeim tækjum sem til staðar eru.
Ekki þarf að sækja um á sérstökum eyðublöðum, en í umsókn þarf að greina frá menntun og fyrri störfum. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi háskólapróf eða iðnmeistararéttindi og æskilegt er að umsækjendur hafi kennsluréttindi. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af starfi í stafrænnar smiðju Óskað er eftir að ljósmynd af umsækjanda fylgi.
Umsóknarfrestur er til 25. júlí nk og gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf 1. ágúst nk. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélaga.
Nánari upplýsingar um störf þessi og kjör veitir skólameistari eða aðstoðarstjórnendur í síma 455-8000 eða 893-1457 eða 894-7484.