Kennari verður skákkennari

Í vetur taka Húnavallaskóli og Grunnskóli Húnaþings vestra þátt í verkefninu „Skák eflir skóla – kennari verður skákkennari.
Í vetur taka Húnavallaskóli og Grunnskóli Húnaþings vestra þátt í verkefninu „Skák eflir skóla – kennari verður skákkennari." Myndin er frá Húnavallaskóla. Mynd: KSE

Í vetur taka Húnavallaskóli og Grunnskóli Húnaþings vestra þátt í verkefninu „Skák eflir skóla – kennari verður skákkennari,“ sem Skáksambandið hefur umsjón með í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Skólaveturinn 2015-2016 var fyrsta framkvæmdarár verkefnisins en megintilgangur þess er að fjölga skákkennurum meðal grunnskólakennara.

Tólf nýir skólar víðs vegar af landinu taka þátt í verkefninu í vetur og eru Grunnskóli Húnaþings vestra og Húnavallaskóli þar á meðal. Helmingur skólanna er á landsbyggðinni og heimsótti Stefán Bergsson verkefnisstjóri nokkra þeirra í hringferð sinni um landið á dögunum, en ferðin hófst í Húnavallaskóla.

Hver kennari sem tekur þátt kennir skák einu sinni í viku í sínum skóla og nýtur leiðsagnar og aðstoðar verkefnisstjóra. Níu skólar tóku þátt í verkefninu síðastliðinn vetur. Á vefnum skak.is segir að mikil ánægja hafi verið hjá kennurum með verkefnið og hafi þeir nær allir náð samkomulagi við sinn skólastjóra um að halda áfram með skákkennslu í stundatöflu í vetur.

Fleiri fréttir