Keppendafjöldi á Landsmóti hestamanna
Skrifstofa Landssamband hestamanna hefur tekið saman upplýsingar úr félagakerfi ÍSÍ, Felix og út frá þeim fundið út þann fjölda fulltrúa sem hvert félag innan LH má senda á Landsmót 2012. Þetta eru alls 116 fulltrúar í hvern flokk eða tæplega 600 í alla flokka gæðingakeppninnar, samkvæmt heimasíðu LH.
„Það er alltaf töluverð spenna sem fylgir því hver leyfilegur fjöldi knapa frá hverju félagi er inn á Landsmót,“ segir á heimasíðu LH en samkvæmt listanum senda hestamannafélögin á Norðurlandi vestra 14 knapa til leiks.
Léttfeti á Sauðárkróki sendir þrjá, Neisti á Blönduósi sendir tvo, Snarfari á Skagaströnd einn, Stígandi í Skagafirði þrjá, Svaði á Hofsósi tvo og Þytur á Hvammstanga þrjá.
Hér er heildarlistinn:
Hestamannafélagið Adam 1
Hestamannafélagið Andvari 5
Hestamannafélagið Blær 1
Hestamannafélagið Brimfaxi 1
Hestamannafélagið Dreyri 2
Hestamannafélagið Faxi 2
Hestamannafélagið Fákur 11
Hestamannafélagið Feykir 1
Hestamannafélagið Freyfaxi 2
Hestamannafélagið Funi 2
Hestamannafélagið Geisli 1
Hestamannafélagið Geysir 6
Hestamannafélagið Glaður 2
Hestamannafélagið Glófaxi 1
Hestamannafélagið Glæsir 1
Hestamannafélagið Gnýfari 1
Hestamannafélagið Grani 2
Hestamannafélagið Gustur 4
Hestamannafélagið Háfeti 1
Hestamannafélagið Hending 1
Hestamannafélagið Hornfirðingur 2
Hestamannafélagið Hringur 2
Hestamannafélagið Hörður 7
Hestamannafélagið Kópur 1
Hestamannafélagið Léttfeti 3
Hestamannafélagið Léttir 4
Hestamannafélagið Ljúfur 2
Hestamannafélagið Logi 2
Hestamannafélagið Máni 5
Hestamannafélagið Neisti 2
Hestamannafélagið Sindri 2
Hestamannafélagið Skuggi 3
Hestamannafélagið Sleipnir 4
Hestamannafélagið Smári 3
Hestamannafélagið Snarfari 1
Hestamannafélagið Snæfaxi 1
Hestamannafélagið Snæfellingur 2
Hestamannafélagið Sóti 2
Hestamannafélagið Stígandi 3
Hestamannafélagið Stormur 1
Hestamannafélagið Svaði 2
Hestamannafélagið Sörli 7
Hestamannafélagið Trausti 1
Hestamannafélagið Þjálfi 2
Hestamannafélagið Þráinn 1
Hestamannafélagið Þytur 3