Keppt í Smala í mótaröð Neista

Þriðja mótið í mótaröð Neista var Smali og fór keppnin fram 18. mars síðastliðinn í reiðhöllinni Arnargerði við Blönduós. Keppt var í þremur flokkum; unglingaflokki, áhugamannaflokki og opnum flokki.

Magnea Rut Gunnarsdóttir á Sigyn frá Litladal sigraði í unglingaflokki, Rúnar Örn Guðmundsson á Kasper frá Blönduósi sigraði í áhugamannaflokki og Eline Schrijver á Krónu frá Hofi sigraði í opnum flokki.

Úrslit urðu sem hér segir.

Unglingaflokkur
1. Magnea Rut Gunnarsdóttir / Sigyn frá Litladal
2. Lilja Maria Suska / Laufi frá Röðli
3. Ásdís Brynja Jónsdóttir / Laufi frá Syðra Skörðugili
4. Sólrún Tinna Grímsdóttir / Perla frá Reykjum
5. Hugrún Pétursdóttir / Brynja
6. Hlíðar Örn Steinunnarson / Neisti 18 v

Áhugamannaflokkur
1. Rúnar Örn Guðmundsson / Kasper frá Blönduósi
2. Magnús Ólafsson / Píla frá Sveinsstöðum
3. Harpa Hrönn Hilmarsdóttir / Lúkas frá Þorsteinsstöðum

Opinn flokkur
1. Eline Schrijver / Króna frá Hofi
2. Finnur Bessi Svavarsson / Skuggi
3. Anna Funni Jonasson / Fróði frá Litladal

Fleiri fréttir