Kindur sóttar á Hvammsdal

Sigurður Sigurðsson á Sleitustöðum, Þórarinn Halldórsson á Ytri-Hofdölum, fjallaskilastjóri í vestanverðum Hjaltadal, eins og myndasmiðurinn, Erlingur Garðarsson í Neðra-Ási titlar hann, og Ástvaldur Jóhannesson á Reykjum.
Sigurður Sigurðsson á Sleitustöðum, Þórarinn Halldórsson á Ytri-Hofdölum, fjallaskilastjóri í vestanverðum Hjaltadal, eins og myndasmiðurinn, Erlingur Garðarsson í Neðra-Ási titlar hann, og Ástvaldur Jóhannesson á Reykjum.

Það heyrir til tíðinda þegar fé er heimt af fjalli í lok janúar. Nýlega sagði Feykir frá því að smalað hefði verið í Vesturfjöllunum svokölluðu í Skagafirði. Í mánudaginn fór svo vaskur hópur austan Vatna manna ásamt tveimur hundum á Hvammsdal og sótti þangað þrjár kindur.

Að sögn Erlings Garðarssonar í Neðra-Ási í Hjaltadal var Ástvaldur Jóhannesson bóndi á Reykjum í Hjaltadal á leið frá vinnu við fiskeldið þegar honum varð litið upp á dalinn. „Hann vinnur í Hólalax og á leiðinni heim, þegar hann horfði einu sinni sem oftar þarna fram á dalinn, sér hann bregða fyrir dökkri kind þarna á snjóskafli.

Var þá gerður út leiðangur og náðust umræddar kindur með dyggri aðstoð smalahundsins Neista frá Sleitustöðum. „Aðalsnillingurinn í þessu ferðalagi er hundurinn Neisti,“ segir Erlingur. „Þetta hefði ekki náðst ef hann hefði ekki verið með. Þetta var ekki löng leið, við ókum upp að Hvammi og þær voru í mynninu á dalnum.“

Erlingur segir að kindurnar séu allar frá Syðri-Hofdölum. Hann segir að þær hafi verið vel á sig komnar og mjög sprækar. Miðað við aðstæður voru þær í ágætum holdum. Svo bíður maður bara spenntur hvort þær fá frelsi næsta vor eða ekki segir Erlingur hlær.

 

Fleiri fréttir