Kirkjan í Skagafirði býður til æðruleysismessu

Æðruleysismessan verður á Löngumýri. Mynd: Af Facebook.
Æðruleysismessan verður á Löngumýri. Mynd: Af Facebook.

Hin árlega æðruleysismessa Skagafjarðarprestakalls verður á Löngumýri þann 22. nóvember næstkomandi kl 20:00. Öll eru sóknarbörn fjarðarins hjartanlega velkomin frá Ábæjarsókn til Knappstaðasóknar að Ketu á Skaga.

Æðruleysismessum er ætlað að auka þakklæti og gleði, gefa staðfestu og styrk þeim sem hafa lent illa í glímunni við Bakkus og aðstandendum þeirra.

Við fáum tvo gesti sem miðla okkur af reynslu sinni, lifandi dæmi um að lífið getur verið fullt af gleði og ánægju þó hvers kyns raunir og lífsháski hafi steðjað að og því má segja að æðruleysismessur séu í rauninni fyrir allt fólk.

Valmar Väljaots verður organisti og séra Karl V. Matthíasson stýrir messunni.

Ps. Það er ekki skilyrði að vera Skagfirðingur til að fá að koma í þessa messu.
Bestu kveðjur, Kalli.

Fleiri fréttir