Ragnar Ágústs í æfingahópi íslenska landsliðsins
Þjálfarateymi A-landsliðs karla hefur valið Ragnar Ágústsson í hóp þeirra 15 leikmanna sem æfa fyrir komandi landsleikjaglugga. Í tilkynningu á Facebook-síðu körfuknattleiksdeildar Tindastóls segir að Ísland mæti Bosníu í Laugardalshöll fimmtudaginn 26. nóvember næstkomandi og heldur svo út til Tyrklands daginn eftir þar sem Strákarnir okkar mæta Tyrklandi í Istanbul sunnudaginn 29. nóvember.
Leikmennirnir 15 æfa saman í aðdraganda leikjanna og svo eru 12 leikmenn valdir til að spila heimaleikinn gegn Bosníu og sömuleiðis fyrir ferðalagið til Tyrklands.
