Vel gert Sigmundur Már!

Dómararnir eru sjaldnast efstir á vinsældalistum körfuboltabullna, jafnvel þó í Síkinu sé stundum sungið um hversu fallegir þeir eru. Það væri sennilega lítið gaman að körfunni ef engir væru dómararnir en fremstur meðal jafningja í flokki þeirra er Sigmundur Már Herbertsson sem náði þeirri mögnuðu vörðu á dómaraferli sínum í Síkinu í gærkvöldi að dæma leik númer 2500 á vegum KKÍ. Feykir tekur hatt sinn ofan fyrir Sigmundi Má.

Í frétt á Karfan.is segir: Sigmundur hóf dómgæslu árið 1994 og hefur því verið með flautuna á lofti í 32 ár. Hann fagnaði áfanganum að leik loknum ásamt meðdómurum sínum í kvöld, þeim Birgi Erni Hjörvarssyni og Jóni Þór Eyþórssyni, með veglegri tertu.

Að sögn Sigmundar var kvöldið sérstaklega eftirminnilegt þar sem leikurinn var jafnframt hinn árlegi Bangsaleikur Stólanna til styrktar félaginu Einstök börn. Sigmundur sagði á samfélagsmiðlum eftir leik að enn væri jafn gaman að standa á gólfinu og vonaðist til að ógleymanlegu augnablikin yrðu enn fleiri á komandi árum.“

Magnað afrek!

Fleiri fréttir