Menningar- og samstöðutónleikar í Hólaneskirkju
Menningar- og samstöðutónleikar verða haldnir í Hólaneskirkju á Skagaströnd þann 19. nóvember kl. 20. Þar munu söngvarar og hljóðfæraleikarar bjóða upp á fjölbreytta tónlistardagskrá til stuðnings Bergrósar Hafsteinsdóttur, ungri móður sem berst við krabbamein.
Bergrós hefur fengið mörg og ósanngjörn verkefni í fangið á lífsleiðinni en ung að aldri missti hún móður sína úr krabbameini og fyrir tveimur árum varð faðir hennar bráðkvaddur. Tekið verður við frjálsum framlögum og rennur allur ágóði til hennar.
Kirkjukór Hólaneskirkju kemur fram ásamt hljómsveit, auk þess sem kvartett, einsöngvarar og munnhörpuleikari stíga á stokk. Hugrún Sif Hallgrímsdóttir leikur á flygil og stjórnar kórnum. Með henni leika Ólafur Þór Ólafsson á gítar, Jón Ólafur Sigurjónsson á bassa og Valtýr Sigurðsson á trommur. Þá mun Þórarinn Grétarsson leika á munnhörpu. Einsöngvarar kvöldsins eru Arna Rún, Sóley Sif, Ólafur Þór, Jón Ólafur, Halldór Gunnar, Hallbjörg, Snæfríður Dögg og Lilja Guðlaug.
Tónleikarnir eru tækifæri til að koma saman, njóta tónlistar og leggja góðu málefni lið. Eftir tónleika ætla samstarfskonur Bergrósar að bjóða upp á upprúll- aðar pönnukökur. Öll eru hjartanlega velkomin í Hólaneskirkju þetta kvöld. /tilkynning
