Kirsuberjablóm og sverð - ímynd Japans og raunveruleikin
Gunnella Þorgeirsdóttir þjóðfræðingur heldur fyrirlestur um japanska menningu í Laxasetrinu á Blönduósi í boði Þekkingarsetursins á morgun miðvikudag kl. 19:30. -Hefur þig einhvern tímann langað til að máta japanskan "kimono" og að læra að brjóta saman "origami" pappírsdýr?, segir Katharina A. Schneider framkvæmdastjóri Þekkingarsetursins.
-Frá því Gunnella hætti störfum við Grunnskólann hefur hún búið að mestu erlendis og unnið að rannsóknum á japanskri menningu. Hún er nú komin aftur til landsins og kennir við Háskóla Íslands. Í fyrirlestri sínum mun Gunnella veita okkur aðeins innsýn inn í hinn sérstæða japanska menningarheim sem virðist svo framandi en er á sama tíma um margt líkur hinum íslenska, segir Katharina.
Að hætti Gunnellu verður fyrirlesturinn aðgengilegur og lifandi, og eftir spjallið mun gestum gefast kostur á að máta kimono, prófa að brjóta saman origami sem og að bragða á japönsku snarli. Allir eru velkomnir á fyrirlesturinn sem en hann ætti að höfða jafnt til yngri og eldri að sögn Katharinu.