Kjarnfóðurverð lækkar um allt að 5%
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
03.10.2013
kl. 08.59
Tvö fyrirtæki sem sjá bændum fyrir kjarnfóðri, Fóðurblandan og Lífland, hafa bæði lækkað verð á kjarnfóðri frá 1. október. Lækkunin er mismunandi eftir tegundum en mest nemur hún 5%. Ástæða verðbreytinganna er lækkun á heimsmarkaðsverði hráefna til fóðurgerðar vegna góðrar uppskeru í Evrópu.
Verðlista kjarnfóðurs frá:
Fóðurblöndunni má sjá HÉR
Líflandi má sjá HÉR