Kjör um mann ársins á Norðurlandi vestra lýkur kl. 12 á hádegi
Kjör um mann ársins á Norðurlandi vestra sem tilnefndir voru af lesendum Feykis og Feykis.is lýkur kl. 12 á hádegi í dag. Í þetta skiptið fengu sjö aðilar tilnefningu til titilsins og sumir reyndar fleiri en eina og fleiri en tvær. Þeir sjö sem hér eru nefndir verða í kjöri sem Maður ársins á Norðurlandi vestra 2012.
Þú getur greitt atkvæði þitt HÉR, eða með því að smella á kassann hér til hægri, en einnig er hægt að senda atkvæði á feykir@feykir.is. ATH! – Allar IP tölur á bakvið hvert atkvæði eru skráðar.
Tilnefnd eru:
Andri Már Sigurðsson tónlistarmaður á Sauðárkróki.
Hefur verið Skagfirðingum til mikils sóma á árinu. Bæði sem fyrirmynd fyrir ungt fólk þar sem hann hefur snúið við lífi sínu og farið aftur inn á beinu brautina og svo fyrir tvær frábærar plötur sem hann hefur gefið út á árinu, þá bæði sólóplötu og svo með hljómsveit sinni Contalgen Funeral. Hann hefur verið nokkuð áberandi á þessu ári og gert Skagfirskri menningu hátt undir höfði.
Ásgeir Trausti Einarsson tónlistarmaður í Húnaþingi vestra
Með útgáfu á sinni fyrst hljómplötu, Dýrð í dauðaþögn, hefur Ásgeir Trausti slegið rækilega í gegn með mjög vandaðri tónlist sinni og textagerð föður síns. Tónlistin og textarnir hafa höfðað til fólks á öllum aldri, einstök lög hafa náð efstu sætum vinsældalista, útgáfan hefur fengið flestar tilnefningar til íslensku tónlitarverðlaunanna og platan hefur einnig verið tilnefnd til norrænu tónlitarverðlaunanna. Ásgeir Trausti er sannarlega fyrirmynd ungs fólks sem er að stíga sín fyrstu spor á tónlistarbrautinni.
Björn Þór Kristjánsson athafnarmaður á Blönduósi.
Björn hefur með dugnaði komið á fót Eyvindarstofu á Blönduósi sem er menningarlega mjög mikilvægur staður fyrir Norðurland vestra.
Guðjón Óli Jónsson og fjölskylda á Blönduósi.
Hefur barist hetjulegri baráttu í veikindum Guðjóns en hann varð fyrir alvarlegu heilsutjóni í mars 2012. Fjölskyldan hefur þurft að taka á stóra sínum á erfiðum tímum.
Kári Kárason framkvæmdastjóri á Blönduósi.
Fyrir frækilegt björgunarafrek í mars er hann bjargaði manni úr bíl sem oltið hafði ofaní Laxá. Svo skemmir ekki fyrir hvað hann er skemmtilegur.
Kolbrún Birna Jökulrós Þrastardóttir í Skagafirði
Var viðstödd slysið á Þórkötlu systur sinni í sumar, sem lenti undir sláttuvél, og sýndi þar einstaka stillingu við að aðstoða föður þeirra systra við að stoppa blóðflæði og sinna fyrstu hjálp á slysstað. Fékk hún einnig það hlutverk að halda upp samræðum við Þórkötlu og passa að hún missti ekki meðvitund. Þar sýndi hún mikla hetjudáð og hélt systur sinni vakandi allan tímann.
Skúli Jónsson altmúligmaður á Sauðárkróki.
Tilnefndur fyrir að veita góða þjónustu í kringum knattspyrnudeild Tindastóls en hann hefur verið einkar liðlegur í yngriflokka starfinu. Fyrir þau yngstu hefur hann verið óþreytandi að snúast í kringum, sótt þau í Árvist til að koma þeim á æfingu, jafnvel keyrt þau heim á eftir. Þá hefur hann gripið inní sem þjálfari, línuvörður eða hvað sem þarf að gera hverju sinni.