Kjöraðstæður fyrir skordýr
Mikil hlýjindi hafa verið undanfarna daga og skapast þá kjöraðstæður fyrir skordýr.
Að sögn Þorsteins Sæmundssonar forstöðumanns Náttúrustofu Norðurlands vestra, eru skordýrin seinna á ferð í ár vegna kuldaskeiðsins sem var í byrjun sumars. En nú hefur kviknað mikið líf, eins og kannski margur hefur orðið var við.
„Oft fylgja framandi skordýr með hlýjum straumum, eins og skrautleg fiðrildi og þess háttar en það virðist ekki vera tilfellið nú. Að mestu er um að ræða húsflugur og önnur staðbundin skordýr,“ sagði Þorsteinn.