Kjördæmisráð Samfylkingarinnar vill kosningar strax

Úr Skagafirði. Mynd: KSE
Úr Skagafirði. Mynd: KSE

Aðalfundur kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi var haldinn í Landnámssetrinu í Borgarbyggð á laugardaginn. Á fundinum var samþykkt stjórnmálaályktun en í henni segir m.a. að verkefni stjórnmálanna á komandi mánuðum og misserum sé að endurreisa velferðarkerfið, tryggja samfélagslegan arð af auðlindum landsins, og endurvekja traust í samfélaginu eftir áföll í efnahags- og stjórnmálalífi frá efnahagshruninu 2008 og fram á þennan dag.

Áherslur aðalfundarins voru:

  • Kosningar strax.
  • Endurreisum velferðarkerfið.
  • Gjaldfrjálsa heilbrigðisþjónustu.
  • Traust í samfélaginu.
  • Vinnum gegn fátækt og mismunun.
  • Stofnum auðlindasjóð.
  • Breytum fiskveiðistjórnunarkerfinu.
  • Nýja stjórnarskrá.

Stjórnmálaályktun aðalfundarins er svohljóðandi:

Samfylkingin í Norðvesturkjördæmi telur að það samrýmist ekki hugsjónum jafnaðarmanna að starfrækja eignarhaldsfélög á lágskattasvæðum. Það grefur undan velferðarkerfinu og sanngjarnri skiptingu á byrðum samfélagsins. Jafnaðarmenn í Norðvesturkjördæmi telja að það sé grunnstef jafnaðarmennskunnar að þeir greiði sem geta og þeir fái sem þurfa. Því gengur það gegn hagsmunum þjóðarinnar að stóreignafólk færi og feli eignir sínar á lágskattasvæðum meðan launafólk ber uppi samfélagið. Ríkisstjórn sem réttlætir og ástundar slíkt athæfi er vanhæf til að gæta hagsmuna þjóðarinnar. Þess vegna verður núverandi ríkisstjórn að fara frá og boða verður til kosninga nú þegar. Nýtt upphaf er nauðsyn fyrir samfélagssátt.

Vinnum gegn fátækt og mismunun
Verkefni stjórnmálanna á komandi mánuðum og misserum er að endurreisa velferðarkerfið, tryggja samfélagslegan arð af auðlindum landsins, og endurvekja traust í samfélaginu eftir áföll í efnahags- og stjórnmálalífi frá efnahagshruninu 2008 og fram á þennan dag.

Eftir þriggja ára stjórnartíð Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hefur ójöfnuður aukist í samfélaginu, velferðarkerfið er stórlaskað og mikilvægir innviðir á borð við samgöngukerfið vanræktir. Því er nú knýjandi þörf fyrir grunngildi jafnaðarstefnunnar við stjórnun landsins. Nú er mikilvægara en nokkru sinni að vinna gegn fátækt og mismunun og auka jöfnuð milli einstaklinga, þjóðfélagshópa, landshluta og atvinnuvega. Fyrstu skref þurfa vera leiðrétting á kjörum aldraðra og öryrkja; stórátak í húsnæðismálum og umbætur í skattamálum sem miða að því m.a. að burðugar atvinnugreinar leggi aukinn skerf til samfélagslegra verkefna. Nauðsynlegt er að á Íslandi starfi öflugur, óháður og ríkisrekinn fjölmiðill.

Tryggja þarf eftir megni jöfn tækifæri fólks, hvar sem er á landinu, til framfærslu, menntunar, grunnþjónustu, atvinnuþátttöku og samfélagslegrar virkni. Gjaldfrjáls heilbrigðisþjónusta er réttlætismál fyrir alla landsmenn.

Auðlindir í þjóðareigu og öflugt atvinnulíf
Krafan um lýðræðisumbætur og auðlindir í þjóðareigu með nýrri stjórnarskrá er enn í fullu gildi.  Gera þarf breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu með almennum, sanngjörnum leikreglum sem nýtast samfélaginu ekki síður en atvinnugreininni. Mikilvægt er að á Íslandi fái þrifist öflugt atvinnulíf sem leggur drjúgan skerf af mörkum til samneyslunnar. Sjálfbærni og virðing fyrir náttúru og umhverfi eiga að vera forsenda við nýtingu auðlinda landsins og grundvöllur heildstæðrar auðlindastefnu. Stefna ber að stofnun auðlindasjóðs og eðlilegri gjaldtöku fyrir auðlindanýtingu til að fjármagna samfélagsleg verkefni, uppbyggingu innviða og rannsóknir í þágu atvinnuvega.

Trúverðugleiki og heilindi eru forsenda heilbrigðra stjórnarhátta. Jafnaðarmenn eiga nú að fylkja sér um velferðina, samneysluna og ábyrgð í stjórnmálum undir merkjum Samfylkingarinnar.

Fréttatilkynning

 

Fleiri fréttir