Kjöri á manni ársins lýkur á hádegi á nýársdag

Eins og fram hefur komið hér á vefnum og í síðasta tölublaði ársins af Feyki stendur yfir kjör á manni ársins á Norðurlandi vestra. Gefst íbúum svæðisins sem fyrr kostur á að velja úr hópi þeirra sem tilnefndir voru af lesendum. Kosningin stendur til hádegis á nýársdag.

Sjö tilnefningar bárust að þessu sinni og stendur kosningin á milli Auðar Bjarkar Birgisdóttur, Evu Pandoru Baldursdóttur, Eydísar Óskar Indriðadóttur, Ingimars Pálssonar, Ívars Elís Sigurjónssonar, Hólmfríðar Sveinsdóttur og Sigríðar Sigurðardóttur. Nánari upplýsingar um þá sem tilefndir eru er að finna hér. Kosninguna sjálfa er svo að finna í gráum kassa hér hægra megin á vefnum.

 

Fleiri fréttir