Kjóstu rétt - Hlutlaust hjálpartæki fyrir kjósendur

Ný, óháð vefsíða, www.kjosturett.is, var sett á laggirnar á dögunum en þar geta kjósendur fundið upplýsingar um stefnu allra þeirra fimmtán flokka og framboða sem bjóða fram lista til Alþingis í kosningum á morgun. Síðan tengist ekki neinum flokki, framboði eða stjórnmálahreyfingu og er hugsuð sem hlutlaus upplýsingamiðill um kosningar fyrir almenning í landinu. Mikið er lagt upp úr því að upplýsingarnar séu samræmdar og aðgengilegar. Á síðunni má finna stefnu framboðanna fimmtán í ellefu málaflokkum, auk hagnýtra upplýsinga og tengla.

Slagorð síðunnar er: Taktu upplýsta ákvörðun – kjóstu rétt.

Kristján Ingi Mikaelsson, Ragnar Þór Valgeirsson og Ásgeir Vísir. Mynd: kjosturett.is.

Þrír ungir menn standa að baki síðunni; Ragnar Þór Valgeirsson vefsmiður, Kristján Ingi Mikaelsson forritari og Ásgeir Vísir grafískur hönnuður.

Kristján Ingi og Ragnar Þór stunda nám við Verzlunarskóla Íslands en eru jafnframt liðtækir í vefsíðugerð. Þeir standa meðal annars að rafræna skiptibókamarkaðnum www.skipta.is.  Ásgeir Vísir er nýútskrifaður grafískur hönnuður og fyrrverandi nemi við Verzlunarskólann.

Kveikjan að síðunni var sú upplifun þeirra Ragnars Þórs, Kristjáns Inga og fleiri ungmenna, að erfitt væri að átta sig á stefnu allra þeirra flokka og framboða sem í boði eru. Þeir ákváðu að grípa til sinna ráða og bera saman flokka og framboð með skipulegum hætti.www.kjosturett.is er afrakstur þess.

Fleiri fréttir