Kolbrún Birna Jökulrós Maður ársins hjá lesendum Feykis
Kolbrún Birna Jökulrós Þrastardóttir í Birkihlíð í Skagafirði hlaut flest atkvæðin í kjöri um mann ársins á Norðurlandi vestra sem tilnefndir voru af lesendum Feykis og Feykis.is. Alls fengu sjö aðilar tilnefningu til kjörsins og var þátttaka þokkaleg í atkvæðagreiðslunni.
Kolbrún Birna Jökulrós lengst til vinstri ásamt systkinum sínum. Fyrir framan hana stendur Hallgerður Helga Vetrarrós og henni á vinstri hönd er Þórkatla Björt Sumarrós og heldur á Ísleifi Eldi en lengst til hægri stendur Brynjólfur Birkir.
Kolbrún Birna Jökulrós fékk tilnefningu fyrir sérstaka hetjudáð og hugdirfsku við erfiðar aðstæður en hún var viðstödd er systir hennar Þórkatla lenti í alvarlegu slysi í sumar er hún varð undir sláttuvél. Kolbrún Birna þótti sýna þar einstaka stillingu við að aðstoða föður þeirra systra við að stoppa blóðflæði og sinna fyrstu hjálp á slysstað. Fékk hún einnig það hlutverk að halda upp samræðum við Þórkötlu og passa að hún missti ekki meðvitund.
Feykir óskar Kolbrúnu Birnu Jökulrós til hamingju með titilinn.