Könnun umhverfisáhrifa á listsköpun
Nes listamiðstöð auglýsir eftir tveimur íslenskum listamönnum sem eru tilbúnir til að taka þátt í KUL verkefninu og eru til í að dvelja í listamiðstöðinni í einn mánuð í september. Innifalin er frí dvöl í listamiðstöðinni og styrkur vegna efniskostnaðar, gegn framlagi listamannanna til verkefnisins.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá listamiðstöðinni fjallar KUL verkefnið um listsköpun og áhrif umhverfisins á hana. Markmið verkefnisins miðar að því að skapa afurð sem hægt er að vinna að á staðnum, afurð sem er hagnýt, afurð sem getur verið þverfagleg og sem örvar huga og hönd.
KUL miðar að því að skapa tengsl milli listforma, þar sem við erum til staðar og virk. Verkefnið kannar samræðuna milli staðarins og tilverunnar, hvernig við erum mótuð af innri og ytri aðstæðum og hina síkviku og gagnvirku mótun umhverfis og sjálfsins.
„Einn þáttur í KUL er matreiðsluverkefni sem Henry Fletcher, sérfræðingur í nýtingu vannýttra hráefna, stjórnar. Hann mun safna plöntum og sjávarfangi við strendur Skagastrandar og nágrennis og vinnur síðan með matreiðslumönnum á svæðinu að nýta hráefnin við að skapa nýjar mataruppskriftir og endurbæta gamlar. Þeir matreiðslumenn sem taka þátt í verkefninu eru Gunnar Sveinn Halldórsson í Kántrýbæ á Skagaströnd, Björn Þór Kristjánsson og Shijo Mathew í Pottinum Restaurant á Blönduósi og Jón Daníel Jónsson á Sauðárkróki,“ segir í fréttatilkynningu.
Lokahátíð KUL verður á Skagaströnd 29. september, með listkynningum og matarviðburðum, listamannanna, matreiðslumanna á svæðinu og heimamanna.
KUL er þverfaglegt verkefni í listsköpun, í umsjón Nes listamiðstöðvar á Skagaströnd og tengir saman íslenska og erlenda listamenn sem dvelja einn mánuð í listamiðstöðinni. Hugmyndasmiðirnir Tanja Geis, Henry Fletcher, Jacob Kasper og Andrea Cheatham Kasper. Verkefnið er í umsjón Melody Woodnutt, framkvæmdastjóra Nes listamiðstöðvar.
Nes listamiðstöð er staðsett á Skagaströnd og í ár dvelja þar yfir 100 listamenn frá fjölmörgum þjóðlöndum. Vaxtarsamningur Norðurlands vestra styrkir KUL verkefnið.
- Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni: http://neslist.is/
- Netfang: Melody Woodnutt: nes@neslist.is
- Sími: Melody Woodnutt: 691 5554
- Umsóknareyðublað: http://neslist.is/application/call-for-artists/