Konur í forgrunni hjá Framsókn á þingi

Sigrún Magnúsdóttir var kjörin þingflokksformaður á þingflokksfundi Framsóknar í morgun en með henni í stjórn þingflokksins eru Þórunn Egilsdóttir, varaformaður og Ásmundur Einar Daðason, ritari.

Samkvæmt tilkynningu frá skrifstofustjóra þingflokks Framsóknarflokksins verður það tillaga Framsóknar á þingfundi síðar í dag að Silja Dögg Gunnarsdóttir verði fyrsti varaforseti þingsins og Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar.

Fleiri fréttir