Kormákur og Hvöt tefla fram sameiginlegu liði í 4.deild
Á mánudaginn lék sameiginlegt lið Kormáks á Hvammstanga og Hvatar á Blönduósi sinn fyrsta leik í B-riðli 4. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Mættu þeir Skínanda á Samsung-vellinum í Garðabæ og biðu lægri hlut í leiknum, sem endaði 4-0. Næsti leikur liðsins er á morgun laugardag, og þá mæta þeir Stálúlfi í Kórnum í Kópavogi kl 16:30. Búist er við hörkuleik, enda bæði liðin með einn tapleik að baki.
Á vefnum norðanátt.is er rætt við Magnús Vigni Eðvaldsson, einn af stjórnendum liðsins, sem segir að þrátt fyrir þetta tap séu batamerki á liðinu. Ásamt Magnúsi sjá þeir Reimar Marteinsson og Hörður Gylfason um liðið í sumar.
Að sögn Magnúsar eru liðsmenn á öllum aldri. „Sá yngsti sem spilaði bikarleik í byrjun mánaðarins er nemandi í 9. bekk á Blönduósi og sá elsti var Albert bóndi í Eyjanesi. Annars erum við að reyna að horfa til framtíðar og með því að gefa yngri leikmönnum tækifæri til að láta ljós sitt skína. Allir leikmenn eru Húnvetningar, nema tveir sem eru Skagfirðingar en reyndar er annar þeirra hálfur Húnvetningur“, sagði Magnús í samtali við norðanátt.is.
Á vefnum norðanátt.is má sjá lista yfir leikmenn í síðasta leik og leikjaplan sumarsins. Einnig er hægt að fylgjast gaumgæfilega með leikjum sumarsins á fésbókinni, með því að gera Aðdáendasíðu Kormáks að ánægjuefni.