Kórónaveiran og matvæli
Matvælastofnun hefur sent frá sér tilkynningu varðandi kórónaveiruna og matvæli í framhaldi þess að til hennar berast ýmsar fyrirspurnir þar að lútandi. Jafnframt bendir Matvælastofnun á almennar upplýsingar um veiruna á vef landlæknis. Fylgst er með þekkingarþróun á þessu sviði og verða upplýsingar hér uppfærðar eins og við á. Hér að neðan fylgja helstu spurningar og svör um þetta efni:
Er hætta á því að matvæli geti borið smit?
Ekki hefur verið staðfest að smit hafi borist með matvælum. Kórónuveiran er ekki matarborinn sjúkdómur. Þeir sem eru í sóttkví og með einkenni ættu þó ekki að útbúa mat fyrir aðra.
Getur veiran borist með ferskum ávöxtum og grænmeti?
Veiran nær ekki að fjölga sér í ávöxtum og grænmeti, né öðrum matvælum. Hins vegar gæti hún setið á yfirborði eftir úðasmit (hnerra eða hósta frá sýktum einstaklingi) en ekki er vitað hversu lengi. Mjög ólíklegt er þó að hún nái að berast milli landa með ávöxtum og grænmeti. Matvælastofnun hvetur neytendur, nú sem áður, til að skola vel ávexti og grænmeti fyrir neyslu.
Getur veiran borist með umbúðum matvæla?
Það er mjög ólíklegt að menn smitist af Kórónuveirunni við snertingu matvælaumbúða. Handþvottur eftir verslunarferð er góð venja. Fylgið leiðbeiningum landlæknis um handþvott og smitvarnir.
Ítarefni:
Upplýsingasíða Embættis landlæknis um kórónuveiruna (COVID-19)
Spurningar og svör varðandi kórónaveiruna (COVID-19) á vef landlæknis