Kosning um mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
13.01.2014
kl. 17.37
Líkt og undanfarin átta ár ætlar Húnahornið að bjóða lesendum sínum að velja mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu. Hver og einn getur aðeins sent inn eina tilnefningu og er jafnframt óskað eftir ástæðu tilnefningarinnar. Maður ársins í Austur-Húnavatnssýslu getur verið einn einstaklingur eða hópur manna.
Þetta er í níunda sinn sem Húnahornið stendur fyrir vali á manni ársins í Austur-Húnavatnssýslu. Lesendur Húnahornsins völdu feðgana Kára Kárason og Pétur Arnar Kárason sem menn ársins í Austur-Húnavatnssýslu fyrir ári síðan.
Valið stendur til miðnættis 24. janúar næstkomandi og verða úrslit kynnt á Þorrablóti Vökukvenna á Blönduósi, laugardaginn 25. janúar.