Krabbameinsfélagið veitir styrki til vísindarannsókna

Í haust auglýsti Krabbameinsfélag Íslands eftir umsóknum um styrki til vísindarannsókna á krabbameinum hjá körlum. Styrkir þessir tengjast átaki félagsins er snýr að baráttunni gegn krabbameinum hjá karlmönnum. Ákveðið var að veita fimm styrki, samtals að upphæð 2,5 milljónir króna, sem skiptast þannig að einn styrkur er ein milljón króna, tveir styrkir eru 500.000 krónur og tveir styrkir 250.000 krónur. Átta umsóknir bárust. Vísindaráð Krabbameinsfélagsins fór yfir umsóknirnar og gerði tillögu til stjórnar félagsins um styrkveitingar.

 

Dr. Sigríður Klara Böðvarsdóttir sameindalíffræðingur hlýtur 1.000.000 kr. styrk til sameindalíffræðilegrar greiningar á skæðu blöðruhálskirtilskrabbameini með arfgenga BRCA2-stökkbreytingu.

Dr. Jón Þór Bergþórsson sameindalíffræðingur hlýtur 500.000 kr. styrk til rannsókna á þrívíðu frumuræktunarlíkani til rannsókna á þroskun og krabbameinsmyndun blöðruhálskirtilþekju.

Dr. Stefán Þ. Sigurðsson sameindalíffræðingur hlýtur 500.000 kr. styrk til að rannsaka áhrif stökkbreytinga í p53-geni á framvindu blöðruhálskirtilskrabbameins.

Jóhanna E. Torfadóttir doktorsnemi hlýtur 250.000 kr. styrk til rannsókna á næringu, lífsháttum og hættu á krabbameini í blöðruhálskirtli.

Tryggvi Þorgeirsson læknir hlýtur 250.000 kr. styrk til að rannsaka hvort magn BRCA2-próteins í vefjasýnum við greiningu geti spáð fyrir um horfur í blöðruhálskirtilskrabbameini og bætt ákvörðun um meðferð.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir