Krafan er að fá fund með forkólfum ríkisstjórnarinnar

Bjarni Jónsson, formaður Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sakaði ríkisstjórnina um að sýna íbúum landshlutans fálæti í fréttum Útvarpsins fyrr í vikunni en ríkisstjórnin hefur ekki svarað erindi samtakanna með fullnægjandi hætti um mögulegar aðgerðir til að bregðast við fólksfækkun.

Eins og greint var frá í Feyki fyrir stuttu óskaði stjórn SSNV með bréfi þann 21. nóvember sl. stílað á Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra með afriti á Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra, eftir þátttöku og stuðningi við myndun aðgerðarhóps stjórnvalda og heimamanna sem fjalla ætti um aðgerðir til að efla landshlutann.

Var bent á þær áhyggjur sem sveitarstjórnarfólk á svæðinu hefði vegna alvarlegrar stöðu landshlutans; viðvarandi fólksfækkun, samdrátt í hagvexti á svæðinu undanfarin ár, versnandi lífs- og búsetuskilyrði íbúa, ekki síst vegna ákvarðana stjórnvalda um lækkun fjárframlaga til verkefna í landshlutanum og stórfelldan niðurskurð opinnberrar þjónustu með tilheyrandi áhrifum á innviði og grunngerð en þær ákvarðanir hafa komið hart niður á svæðinu.

Bjarni sagði  á RÚV að ekkert svar hafi borist frá ráðuneytinu, hvorki skriflega né munnlega, þar til í síðustu viku, eftir að erindi samtakanna hafði verið ítrekað bréflega í lok janúar. Þá var þeim boðinn fundur með starfsmönnum ráðuneytisins. Bjarni segir það óviðunandi. Krafan sé að fá fund með forkólfum ríkisstjórnarinnar. Hann segir að fólk ætlast sé til þess að við það sé talað en ekki sýnt fálæti. Því hafi verið ítrekuð krafan um fund með stjórnvöldum.

Fleiri fréttir