Krefjast lokunar skotsvæðisins

Farið hefur verið fram á við byggðarráð Blönduósbæjar að skotsvæðinu á Blönduósi verði tafarlaust lokað. Veiðifélag Laxár á Ásum og eigendur Hjaltabakka lögðu fram þessa kröfu vegna hávaðamengunar og mengandi efnum á landinu. Á fundi byggðaráðs á miðvikudaginn var erindi frá Óttari Yngvasyni, hrl. lagt fram þar sem hann gerir þessa kröfu fyrir hönd veiðifélagsins og eigenda Hjaltabakka.

Samkvæmt fundargerð kemur fram að byggðaráð hafni erindinu og var sveitarstjóra falið að svara því.

Fleiri fréttir