Kristján Þór opnaði fyrir umsóknir í Matvælasjóð

Í síðustu viku opnaði Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, formlega fyrir umsóknir í nýjan Matvælasjóð en frumvarp ráðherra um stofnun sjóðsins var samþykkt á Alþingi í apríl sl. Alls voru 500 milljónum króna varið til stofnunar sjóðsins og verður þeim úthlutað á þessu ári. Hlutverk sjóðsins er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum.
„Það er stundum sagt að við þurfum að framleiða okkur út úr núverandi ástandi – að það sé lykilatriði í þeirri viðspyrnu sem nú tekur við að við sköpum meiri verðmæti. Það er hárrétt enda erum við Íslendingar matvælaþjóð. Byggjum afkomu okkar öfluga samfélags að stórum hluta á því að nýta auðlindir okkar með sjálfbærum hætti, bæði til sjós og lands. Þessi áhersla og uppruni okkar er einmitt kjarnahlutverk Matvælasjóðs – að styrkja verðmætasköpun við framleiðslu, vinnslu og markaðssetningu matvæla um allt land. Að leggja sérstaka áherslu á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og almennar aðgerðir til að bæta samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu. Því er stofnun Matvælasjóðs ekki bara skref í rétt átt – heldur ein forsenda þeirrar sóknar sem fram undan er í íslenskri matvælaframleiðslu,“ sagði Kristján Þór við opnunina.
Á heimasíðu stjórnarráðsins kemur fram að áhersla verði lögð á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu og markmið sjóðsins að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna.
Gréta María Grétarsdóttir, formaður stjórnar sjóðsins, kynnti sjóðinn og deildir hans við opnunina en Matvælasjóður hefur fjórar deildir: Kelda, sem styrkir rannsóknaverkefni sem miða að því að skapa nýja þekkingu; Afurð, sem styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi en eru þó ekki tilbúin til markaðssetningar, en leiða af sér afurð; Bára sem styrkir verkefni á hugmyndastigi. Styrkur úr Báru fleytir hugmynd yfir í verkefni og
Fjársjóður, sem styrkir sókn á markað. Fjársjóður er samansafn verðmætra hluta og styrkir fyrirtæki til að koma sínum verðmætum á framfæri.
Gréta María sagði að mikla möguleika til staðar tengdir matvælaframleiðslu á Íslandi og mörg tækifæri sem fylgja því að búa í nálægð við auðlindir. „Fyrir vikið gerum við auðvitað ráð fyrir að fá margar umsóknir. Við vitum að íslenskt hráefni er eftirsóknarvert og í því felast mörg tækifæri til að auka vægi íslenskrar framleiðslu í fæðu okkar samhliða því að stuðla að sjálfbærni og minni umhverfisáhrifum. Við stöndum frammi fyrir stórum áskorunum, en með því að nýta betur það sem til fellur í framleiðsluferlinu getum við stuðlað að minni sóun og aukið verðmætin samhliða. Verkefnin sem rúmast innan sjóðsins verða mjög fjölbreytt og munu styrkja samkeppnishæfni okkar.“
Umsóknarfrestur er til og með 21. september 2020
Sjá nánar um Matvælasjóð HÉR