„Kröfurnar fullkomlega eðlilegar og sanngjarnar“
„Menn eru mjög staðfastir og mér sýnist menn almennt vera að virða verkföll,“ sagði Þórarinn Sverrisson, formaður Öldunnar stéttarfélags í Skagafirði, þegar Feykir sló á þráðinn í dag. Verkfallsaðgerðir hófust á miðnætti en þá lögðu rúmlega 10 þúsund félagar Starfsgreinasambandsins niður vinnu, þ.m.t. félagsmenn Öldunnar og Stéttarfélagsins Samstöðu á Blönduósi.
Verkfallið tekur til allra þeirra sem eru að starfa eftir almennum kjarasamningi Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífisins, sem og þjónustusamningi milli sömu aðila. Það mun standa í tvo heila sólarhringa og lýkur því á miðnætti þann 7. maí eða á aðfaranótt föstudags.
Félagsmenn Öldunnar starfa víða í Skagafirði og hefur vinnustöðvunin víðtæk áhrif. Almennt sinna félagsmenn Öldunnar störfum í kjöt- og fiskvinnslu. Eru í ýmsum þjónustustörfum, s.s. í ferðaþjónustu, ræstingum, starfa í mötuneytum og flutningum.
„Bílstjórar Vörumiðlunar lögðu niður störf á miðnætti. Þeir sem voru á leiðinni til Reykjavíkur komu til baka í tæka tíð en fyrirtækið hafði útvegað þeim bílaleigubíl. Þetta hefur áhrif á alla flutninga, þar með talið löndunarþjónustu og strandveiðar þar sem enginn er til að taka á móti fiskinum,“ segir Þórarinn þegar hann tekur dæmi um þau víðtæku áhrif sem vinnustöðvunin hefur.
Þórarinn segir samningaviðræður ekki ganga vel. „Við teljum þessar kröfur sem við erum að setja fram fullkomlega eðlilegar og sanngjarnar en viðsemjendur okkar eru á annarri skoðun, eins og gengur og gerist.“
Mjög snúin staða
„Þetta eru okkar almennu félagsmenn sem eru að starfa í sláturhúsum, kjötvinnslum, ferðaþjónustu, verkstæðum og mjög víða. Þeir eru ansi margir,“ sagði Ásgerður Pálsdóttir formaður Samstöðu um hvar félagsmenn þeirra lögðu niður störf.
Hún segir verkfallsaðgerðir hafa gengið vel og engin kvörtun um verkfallsbrot borist. „Það eru verkfallsverðir á vegum félagsins sem fara um á svæðunum og fylgjast með. Síðan er fólk duglegt að láta vita ef það heldur að það sé eitthvað að fara úrskeiðis.“
Ásgerður segir ekkert ásættanlegt tilboð hafi borist og því sé staðan mjög snúin. „Á meðan svo er þá gengur ekkert mikið. En auðvitað vonumst við eftir því að það komi sem fyrst - okkar markmið er að ná góðum kjarasamningi, það er ekki markmiðið að vera í verkfalli,“ sagði Ásgerður.