Króksamót í minnibolta
Körfuboltamót fyrir krakka á aldrinum 6 - 11 ára verður haldið laugardaginn 12. nóvember. Er þetta í annað sinn sem sem svokallað Króksamót verður haldið en það fyrsta fór fram í janúar síðastliðinn eftir að hafa verið frestað frá nóvember 2010 vegna veðurs.
Með Krókstamóti er vonast til að höfða til krakka frá smærri stöðum á landinu, allt frá Borgarnesi og austur á land. Áhersla er lögð á skemmtun og fjör hjá krökkunum, en úrslitin eru algjört aukaatriði og engin stig talin. Leikirnir eru dæmdir af krökkum í 10. bekk og koma leikmenn meistaraflokks í heimsókn.
Á síðasta mót komu um 140 krakkar frá Akureyri, Skagaströnd, Hvammstanga og Sauðárkróki og tóku þátt. Sérstaka athygli vakti troðslusýning erlendu leikmanna Tindastóls, en vonast er til þess að hægt verði að bjóða uppá samskonar sýningu aftur, enda háloftafuglar á leiðinni á Krókinn í haust.
Fyrir þá sem koma langt að verður hægt að fá gistingu í Árskóla við íþróttahúsið. Þátttökugjald er 1500 kr. og fá allir minjagrip til eignar og máltíð að mótinu loknu. Mótsstjóri er Róbert Óttarsson og hægt er að hafa samband við hann í síma 869-0700 eða á netfanginu robertottars@gmail.com
Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðu Tindastóls.