Krummasaumur

Þó nokkuð er orðið um það að nýbakaðar mæður saumi sjálfar föt og smekki á börnin sín. Sumar hafa tekið saumaskapinn skrefinu lengra og opnað sölusíðu á samskiptasíðunni Facebook. Hrafnhildur Skaptadóttir eignaðist sitt fyrsta barn, Brynhildi Heiðu, þann 22. febrúar sl. og hefur verið dugleg að sauma föt og smekki á dóttur sína. Nú hefur hún opnað sölusíðuna Krummasaumur á Facebook þar sem hægt er að kaupa sérsaumaða smekki og föt á litlu krílin.

Hrafnhildur segir hugmyndina að sölusíðunni aðalega hafa komið eftir að hún fór að sauma smekki og annað slíkt fyrir dóttur sína. ,,Ég fór að sanka að mér efni, bæði gömlum bútum frá mömmu, úr vefnaðarvöruverslunum og erlendis, svo bunkinn stækkaði hratt og örugglega. Það er ekki öllum í blóð borið að geta saumað svo ég ákvað að sjá hvort einhver hefði áhuga á því sem ég væri að gera.”

Hrafnhildur segist hafa fengið góðann grunn í saumum hjá Bíbí og svo hafi mamma hennar verið dugleg að kenna sér. ,,Mottóið sem amma sagði alltaf við hana var: Þeim mun oftar sem þú rekur upp flíkina, því sáttari verður þú. Og ég var svona ljómandi ánægð með fyrsta gallann þegar ég var búin að ná að klóra mér fram úr honum.”

Hrafnhildur segist hafa fengið mun betri viðbrögð við Krummasaum en hún hafi búist við. Hún bíður þó spennt eftir að hefja aftur störf í Blóma- og gjafabúðinni eftir að fæðingarorlofinu lýkur en útilokar þó ekki að hún haldi Krummasaum áfram. ,,Aldrei að vita nema ég geti gert eitthvað á kvöldin, það kemur bara í ljós hvernig viðbrögðin hjá fólki verða við síðunni.”

Hrafnhildur mun vera með sölubás á Lummudögum, laugardaginn 29. júní nk.

Fleiri fréttir