Kvenfélag Svínavatnshrepps 140 ára
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
22.03.2014
kl. 08.12
Í tilefni þess að Kvenfélag Svínavatnshrepps er 140 ára á þessu ári hafa félagskonur ákveðið að setja upp handverkssýningu í kjallara Dalsmynnis við Svínavatn, sunnudaginn 23. mars frá klukkan 13:00 til 17:00.
Einnig verður sýningin opin þriðjudaginn 25. mars frá klukkan 20:00 til 22:00 og vonast félagskonur eftir að sjá sem flesta. Sagt er frá þessu á fésbókarsíðu Húnavatnshrepps.